Kominn heim frá Frakklandi... ári síđar..
Þriðjudagur 15/07
Þá erum við komnir út í bíl með draslið og erum að fara að leggja af stað til Keflavíkur.
-Djöfull væri ég til í hvítan rússa núnaanskotinn. - 21:30

23:30
erum búnir að fara í ríkið í fríhöfninni og keypti ég Gin og Aron keypti sér Romm, Vodka og sígó... Afhverju ætli hann hætti ekki að reykja eins og ég... Sitjum núna á kaffihúsi þar sem ég borgaði 750 kr fyrir langloku og 660 kr fyrir hlandvolgan lítinn bjór..
-Djöfull væri ég til í white russian..

kl. ? 16/07
Erum uþb. hálfnaðir, erum yfir bretlandseyjum uþb. núna og einum um 90 mín eftir. Keypti mér crossiant og 2 bjóra og aron keypti sér sushi og örugglega breezer. Rétt í þessu var smábarn að byrja að grenja og þá er kominn tími til að opna bjór nr. 2.
- mundi ekki segja nei við einum hvítum rússa núna...

Aðeins seinna...
Ókyrrð í lofti... erum að fara framhjá manchester... Ef við hröpum þá er eins gott að einhverjir Man Utd. sauðir drepist..
- Reykja inni?
09:35
við sitjum hérna á lestarstöðinni á CDG flugvellinum og bíðum eftir lestinni okkar sem á að fara af stað uþb. 10:30 og vera komin til nantes 13:30. Við erum ekkert búnir að sofa í ca. sólarhring og þreytan er aðeins farin að segja til sín hjá mér. Aron er furðu hress. Ég er kominn með núningssár upp á 4 á richter og öfunda ég ekki framtíðarjúlla ef þetta á eftir að versna.
-Girl Power
12:34
ég er orðinn svo þreyttur að ég get eiginlega ekki haldið mér vakandi. Ég er búinn að prófa klósettið í lestinni.. það var mjög þröngt þar inni.. enda ekki við öðru að búast, en klósettpappírinn þótti mér heldur sérstakur þar sem hann minnti einna helst á post it miða... bæði í stærð... og ekki síst áferð. Við keyptum líka hamborgara (örbylgju) en homminn sem sá um að hita borgarana var greinilega að spara örbylgjurnar og því bara rétt smellt honum á milli rasskinnanna til að yla brauðið vegna þess að kjötið sjálft var ekki mikið heitara en þessi svellkaldi 1664 bjór sem við fengum með.
Svo gott gabb hjá mér að meira að segja Aron hélt að ég væri sofandi.. auðvitað pósar maður fyrir myndavélina.


20:25
Fórum á Írskan pöbb, get ekki staðið fyrir þreytu... keyptum miða til clisson rétt áðan... komnir upp á tjaldstæði eftir að hafa farið í búð að kaupa tjald handa Aroni þar sem tjaldið hans skilaði sér ekki út úr vélinni virðist vera.. það hefur sjálfsagt gleymst einhversstaðar.. ekki finnst mér það nú ólíklegt ef að afgangurinn af "krúinu" hjá iceland air er einhversstaðar á svipuðum aldri og flugfreyjurnar.. ég hélt ég væri mættur á grímuball á Elliheimilinu á Grund.
17/07
Vöknuðum of seint, misstum af lestinni.. erum í traminu á leið niður í bæ að fara að kaupa miða til clisson.
-eitthvað væri ég nú til í einn ííískaldann rússnenskan albínóa núna.
Til hamingju með afmælið Ibba.
Föstudagur 18/07
Við sitjum hér og horfum á hljómsveitina hipocricy á skjá hjá barnum á metal corner. Erum með svellkaldan Kronenbourg í krús. Það eru nokkrir þrælskemmtilegir Ísraelar sem tjölduðu hjá okkur. Við gleymdum að ganga frá stólunum þannig að einhverjir franskir kebabhundar hafa stolið þeim. Hittum Gísla söngvara Beneath hérna áðan og sagð hann að allir í beneath hafi komið á hátíðina nema Jói. Keypti Sleepyhead(motörhead) bol á Alexander. Keyptum okkur drykkjarhorn.. og kebab auðvitað.. Sáum smá af Necrophagist.. þeir voru þéttir minnir mig. Keypti Pantera armsvitaband...
22:27
Búið að vera über í dag en ekkert spes bönd þannegin. Sepultura voru að klára og við erum komnir upp í metal corner og ætlum örugglega bara að horfa á arch enemy héðan. Tónleikarnir eru líka sýndir hér í beinni á stórum skjá.. Pastors of muppets eru að byrja!

19/07
Fórum frekar snemma að sofa. Tókum bara nokkur lög með pastors of muppets. Klukkan er 11:50 og við vorum að klára electric mary. Þeir voru drullugóðir og söngvarinn var svakalega góður. tamtrum eru að spila og er u eitthvað glat techno metal band.
16:50
Ég er að éta baunakássu og hlusta á Anvil.

22:41
Sáum hluta af Anvil, Airbourne og sáum nevermore, slash, annihilator og twisted sister. Erum búnir í löppunum. Það þýðir bara meiri bjór! Keypti kiss bol handa alexander. Fenguum eiginhandaráritun hjá nevermore og ég tók mynd af Aroni og Jeff loomis. Sitjum í metalcorner með bjór og horfum á immortal.. þeir eru eins konar black metal pöndur.. ekki voða gaman
-KRONENBOURG!
-IMMORTAL
-PANDA23:45
Alice Cooper var að láta hálshöggva sig! Ps.. við sáumst á skjá á nevermore tónleikunum.. ví
21/07 mánudagur..
Sváfum yfir okkur og misstum af lestinni.. Aron er að kaupa lestarmiða.
20:40
Vorum að koma úr sturtu og erum að hlaða ipoda,síma og myndavél. sýndi Aroni kastalann í nantes og skoðuðum kirkju sem ég held að ég hafi ekki skoðað í fyrra. Skoðuðum nokkrar sex shops. Ætluðum að finna einhverja fyndna gjöf fyrir Ibbu þar en það eina sem okkur fannst sniðugt var fisting handleggur og ball gag.. of dýrt stöff.. Kvöddum ísraelana 3x held ég.. frábærir gaurar..
-Let the shoosting begin!
22/07 Þriðjudagur
Vöknuðum kl 04:00 til að taka draslið saman á tjaldstæðinu í nantes og erum komnir út í lest (06:03) og hún var að leggja af stað. Við tókum taxa frá tjaldstæðinu áðan afþví að tramið gengur ekki jafn þétt á þessum tíma. Létum næturvörðinn hringja fyrir okkur í taxa... gómuðum hann við hliðið á leiðinni úr vinnunni. Við bjuggum til grill og reyndum að hita dósamat.. Aron fékk sér eitthvað pasta sull sem leit út eins og mör sem væri búið að túra yfir.. og ég fékk mér chilli hakk bauna kássu eitthvað.. eiginlega eins og ég geri mér oft heima og eins og ég fékk á hellfest.. Mjög góð.. Síðustu bitarnir voru heitir.

Við kinntumst frábærum ísraelum í clisson þegar við aron vorum búnir að fá okkur nokkra öllara á leiðinni úr vínbúðinni á hátíðina og einn þeirra bað um að fá að geima töskuna sína í innkaupakörfunni hjá okkur og við sögðum auðvitað. Síðan skildust leiðir okkar við innganginn.. svo fyrir skemmtilega tilviljun þá komu þeir á okkar tjaldstæði og ákváðu að tjalda hjá okkur sem var frábært! Við skemmtum okkur konunglega með þessum höfðingjum.

Svo var þessi!
Og ekki má gleyma þessum!
.....Fullt af frábærum böndum, kinntumst frábærum Ísraelum, grillaður dósamatur, bjór, sniglar, lu turninn, kúkur í pissuskál.. ég veit að þetta hljómar eins og fullkomin ferð.. en það vantaði eitt.... ég fékk ekki einn white russian...
-Ég legg til að þetta verði héðan í frá kallað.. Hvítur Jússi
Myndir á http://www.flickr.com/jullifus
Engin athugasemd





